Abarat
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1990 | 790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1990 | 790 kr. |
Um bókina
Einu sinni í heimi þar sem tíminn er staðurer í þann veginn að hefjast ferð sem tekur hugarfluginu fram …
Sagan hefst á leiðinlegasta stað sem hugsast getur: Kjúklingabæ í Bandaríkjunum. Þar á Candy Quackenbush heima og þráir heitt að fá einhverja vísbendingu um hvað framtíð hennar ber í skauti sér.
Svarið sem hún fær er allt öðruvísi en hún átti von á. Nánast upp úr þurru brestur á flóðbylgja og Candy fylgir manni sem nefnist Jón Hrekkur (bræður hans búa í hornum á höfði hans), stekkur út í freyðandi sjóinn og er hrifin brott.
Flóðbylgjan ber hana til ABARATS sem er stór eyjaklasi þar sem hver eyja er mismunandi klukkustund sólarhringsins, allt frá Hausnum mikla við Rökkursund, klukkan átta að kvöldi, til sólglitaðra undranna klukkan þrjú síðdegis þar sem drekar eru á ferð, ellegar myrkra ógna Dofrabóls þar sem Kristófer Carrion, lávarður af miðnætti, ræður ríkjum.
Candy kemur á hverja eyjuna á fætur annarri, eignast trausta vini og tekst á við háskalega óvini – vélknúnar flugur og risavaxnar mölflugur, stórkostlega ketti og menn gerða af leðju, grimman töframann og skelfdan þræl hans. Smám saman rennur dálítið upp fyrir henni: Hún hefur áður
verið í Abarat.
Candy er ætlað hlutverk í þessum undarlega heimi: Hún er þangað komin til að bjarga Abarat frá myrkum öflum sem eru eldri en sjálfur tíminn og búa yfir meiri illsku en Candy hefur nokkurn tíma komist í tæri við.
Hún er undarleg kvenhetja, það veit hún. En þetta er líka undarlegur heimur. Og í Abarat getur allt gerst.
3 umsagnir um Abarat
Elín Pálsdóttir –
„Abarat er bók fyrir alla þá sem vilja týna sér í heimi hörkuspennandi ævintýra. Frábærar myndskreytingar og manni leiðist svo sannarlega ekki að lesa hana vegna þeirra. Þær gefa innsýn í það sem að gerist í bókinni og láta mann lifa sig enn meira inn í hana. Bók sem að allir unglingar verða að eignast.”
Guðrún Selma Steinarsdóttir 16 ára / kistan.is
Elín Pálsdóttir –
„Afbragðsævintýri … Nálgun Barkers á fantasíuna er fersk að vanda og hann skapar hér áhrifamikinn og fallegan heim sem gaman er að heimsækja, hverri eyju fylgja ný undur og nýjar upplifanir. Sagan er hæfilega óhugnanleg og hæfilega kómísk líka. Myndirnar gera mikið fyrir söguna og tengjast myndrænum lýsingum svo úr verður ein undraheild.“
Úlfhildur Dagsdóttir / Bókmenntavefurinn
Elín Pálsdóttir –
„Skemmtilega skrifuð saga og ævintýraleg, hæfilega hryllileg og spennandi.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið