Á norðurslóð – ferðasaga frá Grænlandi

Útgefandi: Ásgeir P.
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 250 5.590 kr.
spinner

Á norðurslóð – ferðasaga frá Grænlandi

Útgefandi : Ásgeir P.

5.590 kr.

Á norðurslóð - ferðasaga frá Grænlandi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 250 5.590 kr.
spinner

Um bókina

Feðgarnir Pétur Ásgeirsson og Ásgeir Pétursson sigldu á litlum vélbáti við strendur Grænlands frá Nanortalik í Suður-Grænlandi til Uummannaq, langt norðan heimskautsbaugs. Samanlagt lögðu þeir að baki yfir fimm þúsund kílómetra á tveimur sumrum og heimsóttu þrettán af sautján bæjum Grænlands.

Í bókinni lýsir Pétur því sem fyrir augun ber og jafnframt því sem hrærist í huganum á slíku ferðalagi í stórbrotnu landslagi. Frásögnin er krydduð með ýmsum fróðleik um samfélag og sögu Grænlands og lituð af virðingu í garð granna okkar í vestri.

Á norðurslóð prýða liðlega hundrað glæsilegar ljósmyndir Ásgeirs af náttúru og mannlífi Grænlands. Myndirnar vitna um næmt auga, bæði fyrir hinu stóra og smáa sem á leið ljósmyndarans varð.

Pétur Ásgeirsson sendiherra var fyrsti útsendi aðalræðismaður Íslands í Nuuk frá júlí 2013 til nóvember 2017.  Ásgeir Pétursson er nemi í ljósmyndun. Hann hefur haldið tvær einkasýningar, í Grænlandssetrinu 2016 og Hörpu 2017.

Tengdar bækur