Þerraðu aldrei tár án hanska

Útgefandi: Draumsýn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 294 90 kr.
spinner

Þerraðu aldrei tár án hanska

Útgefandi : Draumsýn

90 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 294 90 kr.
spinner

Um bókina

Þegar Rasmus stígur úr lestinni á Aðalbrautarstöðinni í september 1982 yfirgefur hann litla heimabæinn Koppom í eitt skipti fyrir öll og snýr aldrei þangað aftur. Ungur og fallegur kastar hann sér út í Stokkhólm hinna samkynhneigðu.
Benjamín er vottur Jehóva. Áhugasamur og fylginn sér gengur hann hús úr húsi til að predika um Guð. Ekkert fær hróflað við trú hans. Þar til dag einn þegar hann hringir dyrabjöllunni hjá Paul, hlýlegasta, skemmtilegasta og meinfyndnasta homma sem Guð hefur nokkurn tíma skapað.
Á aðfangadagskvöld þegar snjórinn fellur yfir borgina hittast svo Rasmus og Benjamín og ekkert verður eins og áður.
Það sem sagt er frá í þessari sögu hefur gerst.Það gerðist í borg sem heitir Stokkhólmur, mitt á meðal fólksins sem þar lifir. Í þessari borg, þar sem flestir héldu áfram að lifa lífi sínu eins og ekkert hefði í skorist, fóru ungir menn að veikjast, veslast upp og deyja.

Ég var einn þeirra sem lifði af.

Þetta er saga mín og vina minna.

Tengdar bækur