Saga tónlistarinnar

Stórvirkið Saga tónlistarinnar

Í vikunni kemur út stórvirki Árna Heimis Ingólfssonar um tónlist á vesturlöndum frá miðöldum til nútímans. Verkið nefnist einfaldlega Saga tónlistarinnar, telur yfir 600 síður og er að öllu leyti hinn glæsilegasti gripur.

Tónlistin er töfrum slungin listgrein sem ekki verður til í tómarúmi. Hún mótast af tíðaranda og atburðum á sviði heimsmálanna, trúarbrögðum og kirkjupólitík, afstöðu valdhafa og smekk almennings á hverjum tíma.

Í þessari bók er fjallað á aðgengilegan hátt um vestræna tónlistarsögu allt frá kaþólskum kirkjusöng í upphafi 9. aldar til nýjustu hræringa í samtímanum. Hér má til dæmis fræðast um uppruna barokksins við hirðir á Norður-Ítalíu, áhrif upplýsingarinnar á Níundu sinfóníu Beethovens, samspil tónlistar og þjóðernisvakningar á 19. öld og áhrif stjórnmála 20. aldar á tónsköpun vítt og breitt um Evrópu. Lykilverk tónbókmenntanna fá sérstakt vægi en einnig er litið vítt yfir sviðið og rýnt í tónlistina bæði sem samtímaspegil og farveg tjáningar.

Saga tónlistarinnar er fyrsta yfirlitsritið um tónlistarsögu eftir íslenskan höfund og hentar jafnt tónlistarfólki, tónlistarunnendum og tónlistarnemum, sem og öllu áhugafólki um listir og menningu.

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur hefur getið sér gott orð fyrir texta sína um tónlist, meðal annars í efnisskrám Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann ritaði bókina Jóns Leifs – Líf í tónum, hefur stundað umfangsmiklar rannsóknir á íslenskri tónlistarsögu og komið fram á fjölda tónleika sem píanóleikari og kórstjóri.

Útgáfuboð bókarinnar verður haldið í Hörpu á morgun, miðvikudaginn 6. apríl, kl. 17. Þar verður leikin tónlist og léttar veitingar í boði. Allir velkomnir.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning