Fótboltaveisla ársins er við það að hefjast og besta leiðin til að vera með allt á hreinu á meðan á henni stendur er að vera með opinberu handbók EM 2016 við höndina.
Úrslitakeppni Evrópumótsins í fótbolta verður haldin í fimmtánda sinn dagana 10. júní til 10. júlí 2016 í Frakklandi. Ísland er með í ár en Íslendingar hafa aldrei áður komist svo langt í keppni karlalandsliða.
Í bókinni er fjallað um allt það sem að mótinu snýr. Keppnisliðin eru kynnt, sigurlíkur þeirra metnar og spáð er í hvaða leikmenn eru líklegir til að slá í gegn. Auk þess er sérstakur kafli um Strákana okkar.
Frásögnin er sneisafull af tölfræði og staðreyndum úr sögu þessarar vinsælu keppni og með fylgir nákvæmt leikjayfirlit sem fylla má út eftir því sem mótinu vindur fram.
Ómissandi félagi í fótboltaveislu ársins!