Hildur Eir

Hugrekki

„Ég hef þá inngrónu afstöðu að það sé alltaf hægt að gera eitthvað sér til sáluhjálpar. Og sú afstaða er sennilega mitt besta bjargráð.“

Séra Hildur Eir Bolladóttir er Íslendingum að góðu kunn fyrir einlægar, hispurslausar og kjarnyrtar predikanir og pistla um málefni líðandi stundar. Nú er komin út eftir hana bókin Hugrekki – Saga af kvíða.

Kvíði og einsemd eru erfiðar tilfinningar og því er sá skilningur sem fæst með sameiginlegri reynslu, sjálf nándin, eitt besta meðal sem til er. Þessari bók er ætlað að mæta einsemdinni og kvíðanum. Hún er líka fyrir þá sem aldrei hafa glímt við kvíða, aðstandendur sem standa ráðþrota frammi fyrir þessu undarlega fyrirbæri, en ekki síður fyrir þá sem eru forvitnir um víðáttu hugans og víddir mannssálarinnar.

Í Hugrekki mætast presturinn og manneskjan Hildur Eir í einstakri og afar persónulegri frásögn af baráttu við sjúkdóm sem engin grið gefur.

Útgáfuboð bókarinnar fer fram í Eymundsson á Akureyrir á Uppstigningardag, 5. maí, milli 16 og 18. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Hér má melda sig á Facebook.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning