Forlagið auglýsir eftir handritum fyrir Íslensku barnabókaverðlaunin 2021.

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2021. Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd, miðað við til dæmis grunnstillingu í Word. Skilafrestur er til og með 8. janúar 2021. Handritið á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar, símanúmer og netfang þarf að fylgja með í lokuðu umslagi.

Handritum skal skila í fjórum eintökum til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka

Forlagið

Bræðraborgarstíg 7

101 Reykjavík

Að Íslensku barnabókaverðlaunum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi. Dómnefnd skipuð fulltrúum þeirra, auk tveggja nemenda úr 8. bekk, velur sigurhandritið sem kemur út hjá Forlaginu haustið 2021. Verðlaunin nema 750.000 krónum auk höfundarlauna.

Verðlaunasjóðurinn áskilur sér rétt til að veita ekki verðlaunin ef ekkert handrit berst sem uppfyllir kröfur dómnefndar.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt í rúm 30 ár og undanfarin ár hefur metfjöldi handrita borist. Það ber vott um mikla grósku í skrifum fyrir börn og unglinga sem allt bókafólk hlýtur að fagna.

Nánari upplýsingar um verðlaunin og handritaskil má finna hér.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning