Anna Hafþórsdóttir og Einar Lövdahl sigurvegarar Nýrra radda 2021

Anna Hafþórsdóttir og Einar Lövdahl báru sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins.

Nýjar raddir, handritasamkeppni Forlagsins, snýst um að finna nýjar raddir í íslensku bókmenntalífi en keppnin var nú haldin í fjórða sinn. Skilyrði fyrir þátttöku er að höfundur handrits hafi ekki gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi.

Alls bárust 47 handrit til dómnefndar sem hafði úr vöndu að ráða. Dómnefnd skipuðu Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og ritstjóri, Atli Bollason, bókmenntafræðingur, og Sigríður Rögnvaldsdóttir, ritstjóri hjá Forlaginu.

Niðurstaðan var að verðlauna tvö handrit.

Að telja upp í milljón eftir Önnu Hafþórsdóttur er áhrifarík saga um flókin fjölskyldutengsl, áföll og samskiptaleysi en líka um ástina og lífið. Þetta er fyrsta skáldsaga Önnu sem áður hefur sent frá sér smásögur og ljóð. Sagan segir frá Rakel en daginn sem kærastinn hennar yfirgefur hana fer tilvera hennar á hvolf. Áfallið er mikið því Rakel, sem ólst upp við erfiðar aðstæður, hefur ekkert samband við fjölskyldu sína og á fáa vini. En þegar hún óttast að vera að missa tökin fær hún óvænta heimsókn. Anna er leikkona, handritshöfundur og með Bs gráðu í tölvunarfræði. Hún útskrifaðist með meistaragráðu úr ritlist við Háskóla Íslands árið 2019.

Í miðju mannhafi er fyrsta skáldverk Einars Lövdahl en í henni eru átta smásögur úr samtímanum, litaðar hlýju, húmor, angurværð og hreinskilinni nálgun á karlmennsku: Örþrifaráð til að safna skeggi, óbærilegt stefnumót og hvernig má niðurlægja aðra í góðu gríni. Einar hefur áður gefið út bókina Aron – sagan mín þar sem hann skrásetti sögu Arons Einars Gunnarssonar fyrirliða karlalandsliðsins í knattspyrnu. Einnig samdi hann textann við lagið Ef ástin er hrein ásamt Jóni Jónssyni sem er eitt vinsælasta lag landsins það sem af er ári. Hann hefur samið texta fyrir aðra tónlistarmenn á borð við Jóhönnu Guðrúnu, Helga Björns og GDRN.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning