Barnagæla
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 224 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 224 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Um bókina
„Nágrannarnir hafa hópast saman fyrir framan fjölbýlishúsið. Það eru mestmegnis konur þarna. Bráðum þurfa þær að fara og sækja börnin í skólann. Þær horfa társtokknum augum á sjúkrabílinn …“
Myriam og Paul eru bæði í krefjandi störfum og ráða til sín fullorðna konu til að gæta bús og barna. Louise reynist vera hin fullkomna barnfóstra og verður brátt ómissandi hluti af fjölskyldunni. Smám saman kemur þó í ljós að hún er ekki öll þar sem hún er séð …
Barnagæla er haganlega fléttuð saga; ógnin lúrir undir niðri og lesandanum er haldið föngnum allt frá upphafi. Dregin er upp mynd af dæmigerðri nútímafjölskyldu sem í dagsins önn á sér einskis ills von, en jafnframt skyggnst inn í sjúkan hugarheim manneskju sem svífst einskis þegar henni finnst að sér þrengt.
Þessi önnur skáldsaga Leïlu Slimani vakti gríðarlega athygli í Frakklandi þegar hún kom út haustið 2016 og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál. Fyrir hana hlaut hún bæði hin virtu Goncourt-verðlaun og bókmenntaverðlaun franska kvennatímaritsins Elle. Barnagæla er tilnefnd til Ísnálarinnar 2018, verðlaun sem eru veitt fyrir best þýddu glæpasöguna á íslensku.
Friðrik Rafnsson þýddi.
2 umsagnir um Barnagæla
Árni Þór –
„Hörkuhöfundur … bók sem býr með manni … Talsvert betri en meðal spennubók, þetta eru bókmenntir.“
Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan
Árni Þór –
„Mjög vel gerð bók, spennandi og slándi … Óskaplega vel gert … þarna er bók sem að virkilega slær mann.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan