Systu megin – leiksaga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 181 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 3.990 kr. |
Systu megin – leiksaga
1.990 kr. – 3.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 181 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 3.990 kr. |
Um bókina
Systu megin er hárbeitt og óvenjuleg saga um utangarðsfólk sem fær hér bæði rödd og ásýnd.
Systa býr ein í kjallarakompu við bágar aðstæður en hún ræður sér sjálf. Hún hefur losað sig að mestu undan ægivaldi Mömmu eins og Brósi, bróðir hennar og bandamaður í tilverunni. Saman hafa þau tekist á við harðan heim frá barnæsku en valið hvort sína leið, Brósi innan samfélagsins, Systa utan þess. Dagsdaglega dregur Systa fram lífið með dósasöfnun en þegar henni býðst aukið öryggi í skiptum fyrir frelsi er úr vöndu að ráða.
Skáldverk Steinunnar Sigurðardóttur búa yfir einstökum tóni og andblæ. Sögur hennar eru í senn harmrænar og fyndnar, raunsæjar og furðulegar, og leikandi stíllinn er ærslafullur. Steinunn hefur skapað og skrifað um margar ógleymanlegar kvenpersónur í verkum sínum – svo aðeins Alda í Tímaþjófnum sé nefnd – og nú bætist Systa í hópinn.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 4 klukkustundir og 16 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
4 umsagnir um Systu megin – leiksaga
embla –
„Launfyndið og skemmtilegt skáldverk sem leikur sér að bókmenntaformi og atast í klisjukenndri hugsun. Steinunni Sigurðardóttur er einkar vel lagið að hrista upp í trénaðri orðræðu.“
Kristján Jóhann Jónsson / Fréttablaðið
embla –
„Systu megin er saga um það að vera utangarðs, um harða lífsbaráttu en líka um fegurð, frelsi og náungakærleik. Þetta er saga sem situr í manni, og lifir áfram með manni, þótt einföld sé og fær mann jafnvel til þess að sjá fólkið sem maður mætir á götu úti með nýjum augum.“
Ragnheiður Birgisdóttir / Morgunblaðið
embla –
„Bráðskemmtileg!“
Gísli Marteinn Baldursson
embla –
„Bráðskemmtileg!“
Gísli Marteinn