Útkall – Pabbi, hreyflarnir loga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2010 | Mp3 | 990 kr. | ||
Geisladiskur | 2010 | CD | 990 kr. |
Útkall – Pabbi, hreyflarnir loga
990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2010 | Mp3 | 990 kr. | ||
Geisladiskur | 2010 | CD | 990 kr. |
Um bókina
Í þessari bók eru fléttaðar saman ótrúlega spennandi og persónulegar frásagnir af því sem raunverulega gerðist í eldgosinu í Eyjafjallajökli 2010 og sögulegasta farþegaflugi samtímans, þegar risaþotan BA 009 var um það bil að hrapa í hafið árið 1982 með 263 um borð eftir að hafa verið flogið inn í öskuský sem enginn vissi af. Þetta flug var ein helsta ástæða flugbannsins í Evrópu.
Hér lýsa íbúarnir undir Eyjafjöllum og í Fljótshlíð – karlar, konur og börn – tilfinningum sínum þegar skyndilega kemur tilkynning um að þeir verði að yfirgefa heimili sín – fyrst vegna flóða og síðan öskuskýsins ógurlega. Bændur sjá varla handa sinna skil þegar þeir fá að fara heim til mjalta – svefnlausir í ógnvekjandi þögn og myrkri öskunnar. Þeir lýsa áföllunum og óttanum um skepnurnar og afdrif fjölskyldnanna.
Þessar hreinskilnislegu lýsingar fólksins á eldgosasvæðunum hafa flestar aldrei komið fram áður og láta engan ósnortinn.Flugbannið í Evrópu var einkum sett í ljósi þeirra atburða sem urðu í flugi Erics Moody, flugstjóra BA 009, en hann kom til Íslands og hitti höfundinn haustið 2010.Stuttu eftir að eldgosið í Eyjafjallajökli hófst hringdi síminn á heimili Erics.
Fjölmiðlar heimsins vildu fá hann til að lýsa hinu sögulega flugi árið 1982, en allir um borð héldu að þeir myndu deyja. Höfundur ræddi við Eric og áhöfn hans og farþega víða um heim. Lýsingarnar eru með algjörum ólíkindum. Þetta er hörkuspennandi frásögn.
Höfundur les.
ATH. Hljóðbækurnar eru aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.