Uppruni

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 585 2.590 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Uppruni

Útgefandi : Bjartur

990 kr.2.590 kr.

Uppruni - Dan Brown
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 585 2.590 kr.
spinner
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Um bókina

Robert Langdon, prófessor í táknfræði, er mættur á blaðamannafund í Guggenheim-safninu í Bilbaó, þar sem Edmond Kirsch, heimsþekkt tölvuséní og frumkvöðull, hefur boðað mikil tíðindi: vísindalega uppgötvun sem muni skekja trúarlegan grundvöll kristinna manna en um leið svara áleitnustu spurningum mannkyns: Hvaðan komum við? Hvert förum við?

En blamannafundurinn, sem milljónir manna fylgjast með í beinni útsendingu, fer öðruvísi en ætlað er. Edmond Kirsch hafði áður kynnt trúarleiðtogum uppgötvun sína – og þar með kallað yfir sig reiði voldugra afla. Robert Langdon dregst inn í háskalega baráttu sem berst til Barselóna og tengist bæði andlegum og veraldlegum yfirvöldum á Spáni.

Eins og í fyrri bókum Dans Brown haldast hér í hendur spenna og fróðleikur, því hin æsispennandi atburðarás verður um leið ferðalag um lista- og menningarsöguna – og möguleika nýjustu tækni.

Tengdar bækur