Trans barnið – Handbók fyrir fjölskyldur og fagfólk

Útgefandi: Háskólaútgáfan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 248 4.190 kr.
spinner

Trans barnið – Handbók fyrir fjölskyldur og fagfólk

Útgefandi : Háskólaútgáfan

4.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 248 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Síðustu ár hafa æ fleiri trans börn stigið fram á Íslandi. Oft og tíðum hafa þau mætt litlum skilningi í samfélaginu og jafnvel fordómum. Spurningar um kyntjáningu og kynvitund hafa brunnið á foreldrum þeirra og öðrum aðstandendum.

Trans barnið byggist á áralangri meðferðarvinnu og viðtölum höfundanna við trans börn, börn með ódæmigerða kyntjáningu og aðstandendur þeirra. Bókin leiðir fjölskyldur og fagfólk í gegnum mörg grundvallaratriði fræðanna og áleiðis inn í ferðalagið sem fylgir því að eiga og ala upp trans barn eða barn með ódæmigerða kyntjáningu. Það getur verið flókið, stundum erfitt en á sama tíma þroskandi og lærdómsríkt. Tekist er á við spurningar eins og hvað kynvitund er, hvernig er að koma út, hvað kynleiðrétting er og ekki síst hvernig hægt er að bregðast við þessu öllu saman.

Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar sem birtist á íslensku. Trausti Steinsson kennari þýddi en rýnihópur á vegum námsbrautar í kynjafræði við Háskóla Íslands staðfærði og lagaði að íslenskum aðstæðum.

Tengdar bækur