TMM 3. hefti 2015

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 143 2.190 kr.
spinner

TMM 3. hefti 2015

Útgefandi : MM

2.190 kr.

TMM3
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 143 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Komið er nýtt hefti af TMM, það þriðja á þessu ári. Það er að mestu helgað nýliðinni bókmenntahátíð og í heftinu eru greinar um átta af þeim erlendu höfundum sem að þessu sinni heimsóttu okkur hingað.

Steindór J. Erlingsson líffræðingur og vísindasagnfræðingur hefur um árabil glímt við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir sem hann rekur til áfalls sem hann varð fyrir í kjölfar erfiðrar reynslu sem ungur maður í hjálparstarfi í Afríku. Hann skrifar áhrifamikla grein í heftið um þessa glímu sína hér þar sem við sögu koma geðlyf sem höfðu hrikalegar aukaverkanir, trú og trúleysi og síðast en ekki síst heimspeki Alberts Camus.

Af öðru efni má nefna viðtal Kristínar Ómarsdóttur við Gerði Kristnýju, en áður hafa viðtöl Kristínar við önnur skáld vakið mikla athygli, enda fróðleg, sérstæð og skemmtileg. Hjalti Hugason skrifar um mynd prestsins í nokkrum nútímaskáldsögum og Guðmundur Brynjólfsson fjallar um ferðabækur Thors Vilhjálmssonar og tvíhyggju þar í ljósi guðfræðinnar. Aðalsteinn Ingólfsson skrifar ádrepu um sýninguna Sjónarhorn í Safnahúsinu og loks eru dómar eftir Þórunni Hrefnu Sigurjónsdóttur um Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur og Hjalta Snæ Ægisson um Öræfi Ófeigs Sigurðssonar. Að vanda eru ljóð og sögur í heftinu.

Tengdar bækur