TMM 2. hefti 2011

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 1.765 kr.
spinner

TMM 2. hefti 2011

Útgefandi : MM

1.765 kr.

TMM 2. hefti 2011
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 1.765 kr.
spinner

Um bókina

Í tölublaði þessu birtir Þorsteinn frá Hamri kveðjuljóð sem hann orti til Thors Vilhjálmssonar og Ástráður Eysteinsson prófessor skrifar grein um Thor sem hann nefnir „Munaður sálarinnar“.

Tvær greinar tengjast Jóhanni Jónssyni skáldi: Gunnar Már Hauksson segir frá kynnum föður síns, Hauks Þorleifssonar og Jóhanns, og birtir brot úr bréfi sem skáldið sendi vinafólki þar sem hann rekur ferðasögu til Berlínar sem Halldór Laxness átti síðar eftir að gera skil í bókinni Grikklandsárið. Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrum alþingismaður rekur ástarsögu sem lengi hefur legið í þagnargildi, Angantýr eftir Elínu Thorarensen, sem kom út árið 1946. Þar segir Elín frá því þegar ástir tókust með þeim Jóhanni árið 1915 þegar hann var nítján ára en hún fimmtán árum eldri.

Haukur Ingvarsson heldur áfram að tala við unga rithöfunda – að þessu sinni Kristínu Eiríksdóttur, sem segist hafa gaman af því að jagast í veruleikanum.

Hjalti Snær Ægisson skrifar um T.S. Eliot og Hannes Sigfússon en Emil Hjörvar Petersen skrifar um bókina The Storyteller eftir Nóbelsverðlaunahafann Mario Vargas Llosa.

Auk þess eru í heftinu ádrepur og ritdómar.

Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson.

Tengdar bækur