Tíminn er eins og vatnið

Útgefandi: Iðnú
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 7.190 kr.
spinner

Tíminn er eins og vatnið

Útgefandi : Iðnú

7.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 7.190 kr.
spinner

Um bókina

Bókmenntasögunni Tíminn er eins og vatnið er ætlað að gefa framhaldsskólanemendum og öðrum lesendum innsýn í íslenska bókmenntasögu 20. aldar, en öldinni er skipt í fimm tímabil:

1. Angurværð nýrrar aldar 1900-1930,
2. kreppa og stríð 1930-1945,
3. byltingarárin 1945-70,
4. raunsæi ´68-kynslóðarinnar 1970-1985 og
5. hræringur 1985-2000.

Sérhvert tímabil hefst á umfjöllun um samfélagið enda eru bókmenntir afsprengi þess og þær endurspegla þau átök og það ástand sem þar ríkir hverju sinni. Þá er fjallað um bókmenntir og listir og varpað ljósi á þá bókmenntastefnu sem hefur mest áhrif á hverju tímabili. Ákveðin skáld eru valin sem fulltrúar tímabilsins og þeim gerð betri skil en öðrum. Einn höfundur er nokkurs konar burðarás í bókmenntasögunni og kemur við sögu á öllum tímabilum. Þetta er Halldór Laxness.

Tengdar bækur