Svartþröstur

Útgefandi: Draumsýn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 90 kr.

Svartþröstur

Útgefandi : Draumsýn

90 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 90 kr.

Um bókina

Is That All There is? Nei, það er líf eftir fimmtugt.

Þegar maður er orðinn hálfsextugur eins og hann Rúnar Rúnarsson í Kjöt og Káli, er ólíklegt að lífið taki stakkaskiptum úr því. Allt er eftir beinu brautinni, börnin flogin úr hreiðrinu, eiginkonan hætt að vilja sofa hjá og helsta tilbreytingin er sú að fara vikulega í Bónus og fylla körfuna. Og svo er ein og ein jarðarför til að lífga upp á hversdaginn.

Svartþröstur er launkímin saga um það að ekki séu öll kurl komin til grafar þótt halli undan fæti á lífsveginum. Angurvær og ljúfsár í senn og þarf að lesast af umhyggju til þess að njóta hennar til fulls. Þetta er ástarsaga eins og þær eru bestar – endar vel.

Tengdar bækur