Sultur

Útgefandi: Forlagið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 214 2.290 kr.
spinner

Sultur

Útgefandi : Forlagið

2.290 kr.

Sultur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 214 2.290 kr.
spinner

Um bókina

„Það var á þeim árum er ég ráfaði um og svalt í Kristíaníu …“

Þannig hefst ein frægasta skáldsaga Evrópu, Sultur eftir norska Nóbelshöfundinn Knut Hamsun. Söguhetja hans, ónefndi ungi maðurinn sem hangir á hungurmörkum með höfuðið fullt af skáldskaparórum, átti engan sinn líka þegar bókin kom fyrst út árið 1890.

Í ítarlegum lýsingum á lífi hans frá degi til dags kemur í ljós að ímyndunaraflið er óþreytandi en líkami og sál engjast af hungri, ekki bara í næringu heldur líka í nánd og hlýju, konur, skilning, viðurkenningu og uppljómun hugans.

Með Sulti braut Hamsun blað í evrópskri bókmenntasögu, ekki síst með því að endurskapa sjálfan sig í söguhetjunni á tvíræðan og meinfyndinn en um leið ástúðlegan hátt.

Þýðing Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi kom fyrst út árið 1940 og nær hann einstæðum tökum á stíl og andrúmi frumtextans.

Formála ritar Halldór Guðmundsson.

1 umsögn um Sultur

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur