Stórskemmtilega stelpubókin

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 214 3.190 kr.
spinner

Stórskemmtilega stelpubókin

Útgefandi : VH

3.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 214 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Stórskemmtilega stelpubókin geymir fróðleik um allt milli himins og jarðar og ógrynni af skemmtilegum verkefnum. Hún geymir fjölda hugmynda og mögulegra uppátækja sem stelpur geta notað til að upplifa viðburðarríka dýrðardaga, fulla af spennandi ævintýrum og áskorunum. Bók fyrir allar stelpur á aldrinum 8–80 ára.

Höfundar bókarinnar sækja í aldagamla og auðuga menningu djarfra stelpna, ævintýraheim íþróttaleikja og töfraheim náttúrunnar. Þar geta lesendur m.a. lært sitthvað um lófalestur, saríklæðnað, hnúta, sítrónuknúnar klukkur, karate, verkfæri, vinabönd, keilu, njósnakvendi, sjóræningja, útilegubúnað, frægar vísindakonur, lotukerfið og svölustu pappírsskultur í heimi.

Það leiðist engum sem á Stórskemmtilegu stelpubókina!

„Mjög skemmtileg og fræðandi.“
Harpa Mjöll Reynisdóttir 13 ára / DV

Halla Sverrisdóttir þýddi og staðfærði.

Tengdar bækur