Símon og eikurnar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1999 | 990 kr. | |||
Kilja | 2003 | 404 | 1.190 kr. |
Símon og eikurnar
990 kr. – 1.190 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1999 | 990 kr. | |||
Kilja | 2003 | 404 | 1.190 kr. |
Um bókina
Símon er venjulegur drengur sem elst upp í Svíþjóð en kemst svo að því að hann er ættleiddur og ekkert verður eins og áður. Sakleysi æskunnar er að baki og hann verður að hefja leit að sjálfum sér; leit sem í senn getur bjargað honum og steypt í glötun.
Marianne Fredriksson vakti mikla athygli hér á landi fyrir skáldsögu sína Anna, Hanna og Jóhanna. Sú bók hefur hrifið hjörtu lesenda víða um veröld og setið efst á metsölulistum.
Símon og eikurnar ber sömu merki og sú fyrri og tók við af Önnu, Hönnu og Jóhönnu í toppsætum metsölulista. Frásögnin grípur lesandann föstum tökum enda koma hér við sögu sterkar persónur, tilfinningaríkt fólk sem verður nákomið lesandanum. Hún er í senn einstök þroskasaga ungs manns, saga litríkrar fjölskyldu og saga um óvenjulega vináttu. Þetta er stórbrotin skáldsaga eftir geysivinsælan höfund.