Siglufjörður: Ljósmyndir / Photographs 1872 – 2018

Útgefandi: Síldar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 312 11.990 kr.
spinner

Siglufjörður: Ljósmyndir / Photographs 1872 – 2018

Útgefandi : Síldar

11.990 kr.

Siglufjörður: Ljósmyndir / Photographs 1872 - 2018
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 312 11.990 kr.
spinner

Um bókina

Fáir bæir eiga jafn viðburðaríka sögu og Siglufjörður; hið ótrúlega ris staðarins sem byggðist á síldinni, einum helsta örlagavaldi Íslendinga á 20. öld. Lítið og afskekkt hákarlaþorp komst óvænt í alfaraleið erlendra fiskveiðiþjóða og varð að höfuðstað síldarinnar í Atlantshafi. En svo hvarf síldin – hvað gerðist þá í þessari litlu borg við ysta haf?

Hér er sagan rakin í 140 völdum ljósmyndum og stuttum textum á íslensku og ensku. Samtímis því að skoða meginþættina í sögu staðarins er skyggnst ofan í hið smáa og hversdagslega, athafnir hinna fullorðnu og leiki barnanna svo dæmi séu nefnd.

Þetta er bók sem allir þeir sem áhuga hafa á sögu Siglufjarðar, eða tengjast honum á einn eða annan hátt, ættu að eiga.

Höfundar bókarinnar eru starfsfólk Síldarminjasafns Íslands, Anita Elefsen safna- og sagnfræðingur, Steinunn M. Sveinsdóttir sagnfræðingur og Örlygur Kristfinnsson fyrrum safnstjóri.

Tengdar bækur