Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Síðasti hlekkurinn
Útgefandi: VH
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2014 | 589 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2014 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2014 | 589 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2014 | 490 kr. |
Um bókina
Hrollvekjandi sænsk spennusaga sem seld var til 25 landa áður en hún kom út á frummálinu.
Farsótt mun gjöreyða mannkyninu.
Við vitum hvað er í vændum.
En ekki hvernig á að stöðva það.
Hlutirnir gerast. Tíminn líður. Lífið byrjar, rennur sitt skeið og tekur enda; og ekkert af merkingarleysinu batnar við að skrifa það niður og skoða það síðan eftir á. Og einn góðan veðurdag er öllu lokið, og ef ég veit eitthvað í minn haus þá veit ég það að þegar moldin skellur á kistulokinu yfir mér dettur ekki nokkrum lifandi manni í hug að lesa hvað ég var að afhafast einhvern mánudag í mars.
Ekkert hefði getað fengið mig til að halda dagbók.
Nema eitt.
Sú vissa að bráðlega verði enginn eftir til að lesa hana.
Ísak Harðarson þýddi.
2 umsagnir um Síðasti hlekkurinn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þeir sem vilja óstöðvandi spennu og ekta hasar verða ekki fyrir vonbrigðum með hina hrollvekjandi spennusögu Síðasti hlekkurinn … Viðburðarrík, hrollvekjandi og spennandi – og ákaflega skemmtileg aflestrar fyrir spennusagnafíkla. Höfundurinn hafði greinilega gaman af því að skrifa bókina og það er gaman að lesa hana.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Persónurnar eru sem ljóslifandi og lesandinn ferðast með þeim á ógnarhraða fram og aftur í leit að lausninni … Síðasti hlekkurinn er mjög spennandi bók og frásögnin heldur allan tímann … Þýðingin hittir í mark og lipur texti ásamt mikilli spennu gerir það að verkum að lesandi getur ekki hætt fyrr en yfir lýkur.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið