Saga Pelópseyjarstríðsins

Útgefandi: Sögufélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 640 5.190 kr.
spinner

Saga Pelópseyjarstríðsins

Útgefandi : Sögufélag

5.190 kr.

Saga Pelópseyjarstríðsins
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 640 5.190 kr.
spinner

Um bókina

Skrásetjarinn Þúkýdídes lýsir hinum hörðu bardögum Aþeninga, Spartverja og annarra sem komu við sögu þegar stríðið geisaði á fimmtu öld fyrir Kristsburð. Sjálfur var Þúkýdídes frá Aþenu og tók þátt í átökunum fyrstu árin. Samt leyfir hann lesandanum að draga sínar eigin ályktanir um atburðina sem lýst er. Þannig hafa seinni sagnaritarar mátt hafa hann til eftirbreytni. Jafnframt er ekki að undra að rit Þúkýdídesar hefur löngum verið skyldulesning í ýmsum deildum háskóla um víða veröld.

Í bókarlok er lesandi margs vísari og til vitnis um það eru þessi orð þýðanda, Sigurjóns Björnssonar, í inngangi verksins: „Enda þótt næstum hálft þriðja árþúsund sé liðið frá því að þeir atburðir gerðust, sem þar segir frá, hefur manneðlið lítið breyst síðan saga þeirra var samin. Enn eru valdagræðgin, valdhrokinn, ágirndin, yfirgangurinn og ófyrirleitnin söm við sig hjá þeim sem telja sig hafa krafta til að beita. Höfundur sögunnar virðist af viturleik sínum hafa gert sér grein fyrir þessu.“

Tengdar bækur