Saga Breiðfirðinga I

Útgefandi: Háskólaútg
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 282 5.890 kr.
spinner

Saga Breiðfirðinga I

Útgefandi : Háskólaútg

5.890 kr.

Saga Breiðfirðinga I
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 282 5.890 kr.
spinner

Um bókina


Þegar Ari fróði settist við skriftir á fyrri hluta 12. aldar beindist áhugi hans sérstaklega að Breiðfirðingum, hans eigin forfeðrum, hlutdeild þeirra í landnáminu og forystu í málefnum héraðsins. Síðan þá hafa Breiðfirðingar alltaf verið í lykilhlutverki í sagnaritun Íslendinga. Breiðafjörður hefur sérstöðu meðal héraða á Íslandi hvað varðar stjórnmál, menningu og atvinnuhætti. Þar hefur sjórinn verið þjóðbraut fremur en farartálmi, samnefnari og tenging fremur en sundrandi afl.

Í þessari bók ræður sú sýn að byggðir við fjörðinn myndi heild. Hér segir frá höfðingjum og lærdómsmönnum eins og Ara en einnig bændum, konum, húskörlum og ambáttum, pólitískri sögu þeirra, lífsháttum og afkomu. Útkoman er saga sem aldrei hefur verið sögð áður.

Sverrir Jakobsson er prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Eftir hann hafa áður komið út bókin Við og veröldin. Heimsmynd Íslendinga 1100–1400 og fræðileg útgáfa Hákonar sögu Hákonarsonar.

Tengdar bækur