Passíusálmar

Útgefandi: Salka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 3.190 kr.
spinner

Passíusálmar

Útgefandi : Salka

3.190 kr.

Passíusálmar Salka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Passíusálmarnir hafa um aldir verið Íslendingum hugstæðir og umfram allt um föstutímann. Margir grípa til þeirra til að lesa og hugleiða þann sterka trúarboðskap og auðgi máls sem þar er að finna.

Við útgáfuna er farið eftir 70. og 71. prentunum sálmanna frá 1977 og 1987, sem Helgi Skúli Kjartansson, sagnfæðingur, annaðist. Útgáfan er örlítið löguð að nútímastafsetningu. T.d. er fækkað kommum og ritað s í stað z. Að öðru leyti er hinn forni ritháttur látinn halda sér eins og verið hefur.

1. sálmur
Um herrans Kristí útgang í grasgarðinn

1. Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til.
Herrans pínu ég minnast vil.
2. Sankti Páll skipar skyldu þá,
skulum vér allir jörðu á
kunngjöra þá kvöl og dapran deyð,
sem drottinn fyrir oss auma leið.
3. Ljúfan Jesúm til lausnar mér
langaði víst að deyja hér.
Mig skyldi og lysta að minnast þess
mínum drottni til þakklætis.

Tengdar bækur