Ómunatíð

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 220 2.480 kr.
spinner
Geisladiskur 2011 Mp3 690 kr.
spinner
Kilja 2012 216 2.065 kr.
spinner

Ómunatíð

Útgefandi : Bjartur

690 kr.2.480 kr.

Ómunatíð
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 220 2.480 kr.
spinner
Geisladiskur 2011 Mp3 690 kr.
spinner
Kilja 2012 216 2.065 kr.
spinner

Um bókina

„Ég kom heim til mín síðla dags þetta vor. Vissi að það var eitthvað að. Það var búið að draga gluggatjöld fyrir alla glugga. Konan mín æddi um íbúðina. Það mátti hvergi sjást ljósskíma. Hún var að verjast einhverju. Svo bráði af henni. Hún lagðist upp í rúm og sagði: „Varstu hræddur?“ „Já, ég er hræddur,“ sagði ég. „Þetta er allt í lagi. Þetta er búið,“ sagði hún. Hún var nýorðin 25 ára. Ég þrítugur. Við áttum tvær dætur. Tveggja og hálfs árs og fimm mánaða gamlar. Þessa dagsstund breyttist líf okkar með óafturkallanlegum hætti.“

Þannig hefst saga Styrmis Gunnarssonar um sjúkdómsbaráttu eiginkonu hans og þau áhrif, sem veikindin hafa haft á líf fjölskyldu þeirra í meira en fjóra áratugi. Í þeirri glímu hafa skipst á skin og skúrir, dimmir dagar og glaðar stundir en geðveikin hefur ævinlega verið nálæg.

Styrmir fjallar einnig um ólíkar aðferðir í geðlækningum og afleiðingar veikindanna fyrir þá sem næst standa, ekki síst börn geðsjúks foreldris.

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

 

Tengdar bækur