Ó fyrir framan

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Ó fyrir framan

Útgefandi : VH

990 kr.

Ó fyrir framan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Um bókina

Þó að sögur Þórarins Eldjárns hafi á sér sakleysislegt yfirbragð, þá er flest með þeim ólíkindum að hætt er við að tvær grímur renni á lesendur, enda skýtur höfundurinn sér óspart á bak við gráa glettu og hér er flest annað en sýnist. Heppni hjónanna Aðalsteins og Eddu snýst til að mynda í heppni með ó fyrir framan á sömu stundu og þau álpast í eplakassann forboðna í sjoppunni Paradís. – Sá gæflyndi og spaki heimilishundur, Lilli, reynist ógæfan ein og umhverfist í klámhund af gefnu tilefni. – Og þó að Sigurlaug, sjónvarpskonan vinsæla, finni hamingjuna um stund í viðtalsþáttum sínum, uggir stúlkan ekki að sér fyrr en hún hefur ánetjast óhamingju trylltrar fíknar sem rekur hana í endalaus opinská og einlæg viðtöl. Það má svo sem vel vera að sumir telji sig hafa á milli handanna haldgóðar dæmisögur um hégóma og fláræði. En eins víst er að um misskilning sé að ræða, því þær eru sannast sagna hálar. Og hætt er við að um boðskapinn og merkinguna muni menn endalaust þræta.

Bókin kom upphaflega út árið 1992.

Myndskreytingar bókarinnar gerði Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson.

Tengdar bækur