Öðruvísi saga

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2006 111 1.790 kr.
spinner

Öðruvísi saga

Útgefandi : VH

1.790 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2006 111 1.790 kr.
spinner

Um bókina

Loksins er Karen Karlotta orðin tíu ára og sumarið er viðburðaríkt – hún veltir fyrir sér stóru sem smáu, allt frá agnarlitlum villtum blómum úti í móa til flókinna stríðsátaka lengst úti í heimi. Á afmælisdaginn kemur bréf frá afa í Englandi þar sem hann býður allri fjölskyldunni í heimsókn um haustið og ekki verður það til að einfalda líf Kæju eða fjölskyldu hennar! Amma vill alls ekki fara og enginn hinna þorir einu sinni að hugsa til þess að sumarið taki enda og haustið komi.

Öðruvísi saga er þriðja bókin í bókaflokki Guðrúnar Helgadóttur um dugnaðarforkana Karen Karlottu og Jöra bróður hennar og stóru fjölskylduna þeirra.

Guðrún hefur fyrir löngu skipað sér í fremstu röð íslenskra rithöfunda og hlotið margvísleg verðlaun fyrir skrif sín, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin og verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, ásamt tilnefningu til H.C. Andersen og Astrid Lindgren verðlaunanna. Fyrir bókina Öðruvísi daga fékk Guðrún Bókaverðlaun barnanna og Öðruvísi fjölskylda var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Tengdar bækur