Nýtt land

Útgefandi: Salka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 1.695 kr.
spinner
Kilja 2011 360 1.695 kr.
Geisladiskur 2012 Mp3 990 kr.
Hljóðbók - streymi 2018 App 990 kr.
spinner

Nýtt land

Útgefandi : Salka

990 kr.1.695 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 1.695 kr.
spinner
Kilja 2011 360 1.695 kr.
Geisladiskur 2012 Mp3 990 kr.
Hljóðbók - streymi 2018 App 990 kr.
spinner

Um bókina

Nýtt land er þriðja bókin um Karl Óskar og Kristínu sem gerast landnemar í Ameríku ásamt fjölda Svía og annarra Evrópubúa á 19. öld. Lífsbaráttan er hörð og margt sem þarf að læra í nýju landi til að koma undir sig fótunum. Annars konar lífríki og náttúrufar kallar á breytt verklag og þótt jörðin sé frjósöm taka þurrkar og vindar sinn toll.

Karl Óskar og Kristín voru fyrstu landnemarnir sem settust að á yfirráðasvæði Chippewa-indíána við Ki-Chi-Saga vatn. Nú er orðið fullbyggt umhverfis það og allt breytt, meira að segja vatnið hefur fengið nýtt nafn og kallast nú Sweedes Lake, eða Svíavatn.

Eyðilandið hefur tekið á sig mynd hins nýja tíma með háreistum húsum og bleikum ökrum þar sem kornið bylgjast í golunni. Þegar Karl Óskar og Kristín staldra við og líta til baka finnst þeim þúsundir daga renna saman í einn langan dag af þrotlausu erfiði. En með stolti horfa þau á akrana, túnin og glæsilegt býlið sem þau hafa reist. Vinnan var jafn erfið í nýja landinu og í því gamla, en munurinn finnst þeim sá að í Ameríku skilaði erfiðið árangri. Af þeirri ástæðu höfðu þau skipt um fósturland og barnahópurinn þeirra efnilegi mun eiga bjarta framtíð í nýja landinu.

Þetta er þriðji og næst síðasti hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg.

ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 18 klukkustundir að lengd. Hjalti Rögvaldsson leikari les.

Tengdar bækur