Niðurfall

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2004 - 990 kr.

Niðurfall

Útgefandi : MM

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2004 - 990 kr.

Um bókina

„Eftir að ég las bókina Breiðholtsstrákur fer í sveit jólin 1989 varð mér ljóst að ég myndi aldrei ná fullum þroska innan marka borgarinnar. Þegar leið á veturinn færði ég í tal við foreldra mína að ég vildi fara í sveit, helst á óðal móðurættar minnar í Norðdahl. Erindið var auðsótt og leyst úr því greiðlega.

Um páskana hringdi móðir mín norður, skiptist á hnitmiðuðum setningum um sauðburð við manneskjuna á hinum enda línunnar og að samtalinu loknu tilkynnti hún mér brottfarardaginn.

Ég átti erfitt með einbeitingu síðustu vikurnar í skólanum því ég gat ekki beðið eftir að komast á vit menningarinnar; á söguslóðir Íslendingasagna þar sem ég gæti stælt líkama minn og hert taugarnar í baráttu við óblíða íslenska veðráttu en jafnframt brugðið á leik við frjálsborin ungmennin á bænum og bæjunum í kring ...“

Niðurfall - og þættir af hinum dularfulla Manga er fyrsta bók Hauks Ingvarssonar þar sem snörp ljóð takast á við lengri texta um ævintýri ljóðmælanda og vinar hans í sveit og borg. Haukur skrifar af miklu stílöryggi og af þessari bók er ljóst að komið er fram nýtt og öflugt skáld sem hefur margvísleg form bókmenntanna á valdi sínu.

Tengdar bækur