Næturstaður

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 176 2.065 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Næturstaður

Útgefandi : JPV

990 kr.2.065 kr.

Næturstaður eftir Sigurð Pálsson
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 176 2.065 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Um bókina

Lesandinn slæst í för með Reyni sem hefur dvalið árum saman á meginlandinu en snýr nú aftur til heimabyggðarinnar á hjara veraldar til að vera viðstaddur jarðarför föður síns. Þar ólgar hafið við strönd, jökulsá byltist um sanda og draugar setjast að vegfarendum á heiðum.

Aðalpersónan hefur forðast þessa náttúru eins og hann hefur alla tíð forðast að takast á við fortíðina.

Við söguna af heimsókninni fléttast atvik úr æviferli manns saman við hugleiðingar um tímann og framvinduna í heiminum svo minnir á máttugt tónverk. Stórbrotnar náttúrulýsingar og sterkar svipmyndir af fólki fanga hugann og lesandinn sogast inn í straum frásagnar þar sem fortíð, nútíð og framtíð mætast í sömu andrá og miðla nýrri og ferskri skynjun.

Þetta er þriðja skáldsaga Sigurðar Pálssonar. Sagan ber þess vitni að frásagnartækni höfundar er í athyglisverðri þróun. Allt er tengt á listilegan hátt í þessari sögu, smáatriði og heild, ytri veruleiki og innri líðan, fortíð og nútíð.

Tengdar bækur