Musa

Útgefandi: Crymogea
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 164 4.290 kr.
spinner
Kilja 2018 168 1.490 kr.
spinner

Musa

Útgefandi : Crymogea

1.490 kr.4.290 kr.

Musa
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 164 4.290 kr.
spinner
Kilja 2018 168 1.490 kr.
spinner

Um bókina

Þegar höfundur Musu lendir í slæmri myndlistarkrísu einsetur hann sér nota þrautreynda leið til að bjarga sér úr kreppunni og skrifa bók, en uppgötvar þá að hann er líka haldinn ritstíflu — „ógeðslegasta orð íslenskrar tungu“.

Vegna hugboðs er hann kominn til eyjarinnar Hainan í Suður-Kínahafi en ekkert gerist í skrifunum og í ofanálag er hann lagður inn á spítala. Hugarorkulaus og sköpunarstíflaður freistar hann nú þess að finna aftur leiðina til sinnar heittelskuðu Musu, gyðju sköpunarinnar.

Sigurður Guðmundsson veitti nýjum straumum inn í íslenskt bókmenntalíf með skáldsögum sínum, Tabúlarasa, Ósýnilegu konunni og Dýrin í Saigon. Vangaveltur um tungumál, kyn og þjóðerni þyrluðust um í hrífandi stróki og íslenska sagnaþráin fann um stund félaga og vin í hugleiðingunni og hugmyndinni.

Sigurður Guðmundsson er fæddur í Reykjavík árið 1942. Hann er einn fremsti myndlistarmaður Íslendinga og verk hans eru í eigu margra helstu listasafna heims. Hann dvelur lengstum í Xiamen í Kína.

Tengdar bækur