Hvert snýr kona sér þegar eiginmaðurinn er sakaður um að hafa myrt pabba hennar og bestu vinkonu? Hvað gera ættingjar stúlku sem hverfur sporlaust og lögreglan segir að muni aldrei koma í leitirnar? Hvernig á að skýra fingur sem finnst í sprungu í Snæfellsjökli?
Auðvitað er leitað til Stellu Blómkvist. Hún er:
• lögfræðingur sem braskar með hlutabréf í frístundum
• leðurklædd einstæð móðir á silfruðum Benz
• með óseðjandi kynhvöt
• minnug visku móður sinnar
• lítill aðdáandi lögreglunnar
• sú sem þeir sem engu hafa að tapa snúa sér til
Morðin í Skálholti er áttunda bókin um Stellu Blómkvist sem er harðsnúin, sjálfstæð og herská sem aldrei fyrr.
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Hvort heldur það er kven- eða karlmaður er ljóst að viðkomandi kann vel til verka þegar kemur að því að skrifa harðsoðna reyfara með flóknum fléttum.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið (um Morðið í Alþingishúsinu)
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Stella töffari hefur hitt á réttu formúluna.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið (um Morðið í Hæstarétti)
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… snöfurlega gert, og bráðskemmtilegt aflestrar. Þó tónninn sé ekki alveg eins léttúðugur og í fyrstu bókunum, þá fer þessi aukni þungi Stellu vel og hún nær að halda öllum boltum á lofti, og lesandanum við efnið.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is