Lífssögur ungs fólks

Útgefandi: Háskólaútg
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 566 7.290 kr.
spinner

Lífssögur ungs fólks

Útgefandi : Háskólaútg

7.290 kr.

Lífssögur ungs fólks
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 566 7.290 kr.
spinner

Um bókina

Fátt er okkur mikilvægara en uppeldi og menntun barna og ungmenna. Í þessari bók beinist athyglin að því mikilvæga hlutverki uppalenda að hlúa að vellíðan og velferð æskunnar, bæði henni og samfélaginu til heilla í samtíð og framtíð.

Bókin er á margvíslegan hátt nýjung á innlendum og erlendum vettvangi. Hún byggist á viðamikilli langtímarannsókn höfundar þar sem kannaðir eru ýmsir þroskaþættir ungmenna frá upphafi unglingsára fram á þrítugsaldur. Sérstök áhersla er þar lögð á að skoða hvernig uppeldisaðferðir foreldra geta haft áhrif á samskiptahæfni ungmenna og líðan, sjálfstraust þeirra og trú á eigin sjálfstjórn, námsgengi og áhættuhegðun allt að átta árum fram í tímann.

Raktar eru áhugaverðar lífssögur fimm ungmenna frá því þau eru á sextánda ári og fram á fertugsaldur. Þar lýsa þau samskiptum sínum við þá sem þeim eru nánir: foreldra, vini, sambúðarfólk og eigin börn. Styrkleikar þeirra eru dregnir fram sem og uppeldissýn þeirra, meðal annars þau gildi sem þau vilja rækta með börnum sínum. Lífssögur ungs fólks er bók sem á brýnt erindi við okkur öll.

Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir er prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars við Háskóla Íslands fyrir „lofsvert framlag til rannsókna“ og Samanhópsins fyrir „vel unnin fræðistörf og gagnlegar rannsóknir í þágu foreldra og barna“. Auk þess hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu „fyrir störf í þágu uppeldisvísinda og menntunar“.

1 umsögn um Lífssögur ungs fólks

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur