Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Laufskálafuglinn
Útgefandi: Salka
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2000 | - | 1.695 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2000 | - | 1.695 kr. |
Um bókina
Laufskálafuglinn býr bæði yfir trega og kímni. Þetta er saga um ást í öllum myndum og án landamæra, hvort sem er í lítilli íbúð í Reykjavík, eða á sjóðheitum lendum Spánar.
Þetta er saga um fólk sem býr í ólíkum heimum og tilraunir þess til að slíta sig hvert frá öðru eða sameinast – og búa sér til sinn eigin laufskála.
Margrét Lóa er löngum þekkt fyrir ljóðabækur sínar en Laufskálafuglinn er fyrsta skáldsaga hennar. Höfundur blandar saman á nýstárlegan hátt ýmsum formum skáldskapar og nýtir sér vísanir sem gera frásögnina í senn frumlega og áleitna.