Ísland í nærmynd

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 1.190 kr.
spinner

Ísland í nærmynd

Útgefandi : JPV

1.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 1.190 kr.
spinner

Um bókina

Ísland í nærmynd er ljósmyndabók eftir Thorsten Henn sem kemur út á íslensku, ensku og þýsku. Thorsten lagði af stað með það að leiðarljósi að kanna frumefni landsins og þess vegna er bókinni er skipt í fjóra hluta eftir stíl og myndefnum sem nefnast Land, Vatn, Loft og Fólk. Að mati Thorstens væri myndin ekki fullgerð nema „eldþjóðin“ fái sinn sess og hið flókna samband Íslendinga við náttúruna.

Í Landi eru myndir af landslagi; hraunbreiðum, fjallgörðum, stuðlabergi, heiðum og hellum. Í Vatni gefur að líta ár og gil, úfinn sjó, fossa, hveri, báta og skip. Loft sýnir landið úr lofti. Þar sjást jöklar, litskrúðug gil, ræktarlönd, strendur, mannvirki, lón, gígar o.m.fl. Í kaflanum um Fólk eru myndir af ýmsu þjóðþekktu fólki af sviði lista, fjölmiðla og stjórnmála, en ekki síður bændum, björgunarsveitamönnum, verslunarfólki og þar fram eftir götunum.

Tengdar bækur