Hvíta bókin

Útgefandi: Mál og menning
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 990 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2009 1.935 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Hvíta bókin

Útgefandi : Mál og menning

990 kr.1.935 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 990 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2009 1.935 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Um bókina

Einar Már Guðmundsson er meðal okkar virtustu rithöfunda en í nýjasta verki hans kveður við nýjan tón. Hvíta bókin er eftirtektarvert rit frá framúrskarandi höfundi sem kryfur ástand samfélagsins og hvetur þjóðina til betri verka.

Hvíta bókin er um margt einstakt verk, fjörug og fyndin bók en um leið miskunnarlaus í lýsingu sinni á íslensku samfélagi og þróun þess á undanförnum árum; hún fer vítt um í tíma og rúmi, blandar saman persónulegum minningum höfundarins og köflum úr stjórnmálasögu heimsins, rokkmúsík og efnahagsumræðu, pólitík og bókmenntum, samfélagsgagnrýni og hollum mannskilningi. Þar sannast að stundum þarf skáldskapargáfu til að sjá hlutina í sínu rétta samhengi og benda á augljósar lausnir.

Hvíta bókin
er bæði hugmyndabanki og óvenjulegt upplýsingarit. Einar Már hlífir engum, hvorki til hægri né vinstri, og spyr óþægilegra spurninga, ekki ólíkt barninu í sögunni sem velti fyrir sér hvers vegna keisarinn væri ekki í neinum fötum. Kveikjan að bókinni var ögrandi skrif Einars í Morgunblaðið fyrstu vikurnar eftir hrunið síðasta haust, en þau vöktu mikla athygli hér heima og erlendis og rötuðu m.a. á síður Information í Danmörku og Gautaborgarpóstsins í Svíþjóð.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 6 klukkustundir og 26 mínútur að lengd. Guðmundur Ólafsson les.

Tengdar bækur