Hjólabókin 5 – Rangárvallasýsla

Útgefandi: ÓmarSmári
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 112 2.390 kr.
spinner

Hjólabókin 5 – Rangárvallasýsla

Útgefandi : ÓmarSmári

2.390 kr.

Hjólabókin 5 - Rangárvallasýsla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 112 2.390 kr.
spinner

Um bókina

Þetta er fimmta Hjólabókin sem kemur út. Hún fjallar um Rangárvallasýslu.

Viltu ferðast á frábæra staði? Viltu samt losna við fjölmenni? Þá er reiðhjólið rétti ferðamátinn og Rangárvallasýsla rétti staðurinn.

Hér er lýst ellefu hjólreiðaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring og að hægt er að loka hringnum á einum degi. Hverri leiðarlýsingu fylgja tillögur að fleiri ferðum. Þar að auki er nokkurra léttra hringleiða sem ekki teljast til dagleiða getið í bókinni. Einnig er í henni að finna kort af almenningssamgöngum og umferðarþunga.

Helstu hagnýtu upplýsingar um hverja leið eru útlistaðar í máli og á kortum. Allar leiðirnar eru teiknaðar með litaskala sem útskýrir hve brattinn er mikill. Um eitt og hálft hundrað ljósmynda gefur innsýn í sýsluna, hvernig þar er umhorfs og hverskonar vegir og stígar bíða lesenda.

Góða ferð.

Tengdar bækur