Hernaðarlist meistara Sun

Útgefandi: Háskólaútg
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 146 4.190 kr.
spinner

Hernaðarlist meistara Sun

Útgefandi : Háskólaútg

4.190 kr.

Hernaðarlist meistara Sun
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 146 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Hernaðarlist Meistara Sun, eða á frummálinu Sunzi bingfa 孫子兵法, er eitt rómaðasta og víðlesnasta fornrit Kínverja. Bein áhrif þess á hernaðartækni Kínverja og þjóðanna í kring í tímanna rás verða vart ofmetin. Inntak ritsins endurspeglar einnig almennari „strategíska“ hugsun Kínverja sem beitt hefur verið á fjöl­mörgum sviðum daglegs lífs, til dæmis í stjórn­málum, viðskiptum og jafnvel kænskubrögðum sem tengjast ástum.

Þýðing Geirs Sigurðssonar sem hér birtist er fyrsta íslenska þýðingin úr fornkínversku og er frumtextinn birtur við hlið þýðingarinnar. Við þýð­inguna hefur Geir ritað fjölmargar skýringar og ítarlegan inngang þar sem ritið er sett í sögulegt samhengi og gerð grein fyrir heimspekinni sem bæði birtist og leynist í textanum.

Ritstjóri bókarinnar: Rebekka Þráinsdóttir

Ritnefnd SVF: Ásdís R. Magnúsdóttir og Rebekka Þráinsdóttir

Tengdar bækur