Gyllti áttavitinn

Útgefandi: Mál og menning
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 361 1.790 kr.
spinner

Gyllti áttavitinn

Útgefandi : Mál og menning

1.790 kr.

Gyllti áttavitinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 361 1.790 kr.
spinner

Um bókina

Gyllti áttavitinn er fyrsta bók margverðlaunaðs þríleiks Philips Pullman um stúlkuna Lýru sem elst upp í fullkomnu öryggi innan um fræðimennina í Jórdanarskóla á Englandi. Þar til einn daginn að börn fara að hverfa, þar á meðal Roger besti vinur Lýru.

Lýra einsetur sér að finna vin sinn og sú leit leiðir hana þangað sem norðurljósin prýða himininn, brynjubirnir eru konungar íssins og nornir kljúfa loftið. Þar stunda vísindamenn líka skelfilegri tilraunir en nokkur getur ímyndað sér.

Sagan er upphaf þríleiks Pullmans um myrku öflin en hin tvö bindin heita Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn. Þríleikurinn hefur enda sópað að sér verðlaunum, í heimalandi höfundarins sem og utan þess, og Philip Pullman hlaut meðal annars hin virtu Astrid Lindgren Memorial Award fyrir ritstörf sín.

Anna Heiða Pálsdóttir þýddi.

Tengdar bækur