Guðni af lífi og sál

Útgefandi: Bjartur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 424 2.200 kr.
spinner

Guðni af lífi og sál

Útgefandi : Bjartur

2.200 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 424 2.200 kr.
spinner

Um bókina

Guðni Ágústsson hefur lifað dramatísku lífi. Hann ólst upp í frumstæðu bændasamfélagi en varð ráðherra á 21. öldinni, hann var feiminn piltur í Héraðsskólanum á Laugarvatni en varð einn vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar; hann lenti í hringiðu mikils valdabrölts þar sem átti að koma honum út úr pólitík en stóð eftir sterkari en áður.


Í bókinni Guðni - Af lífi og sál ræðir hann umbúðalaust um viðkvæm pólitísk deilumál liðinna ára, bæði innan Framsóknarflokksins og á vettvangi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Í henni er einnig fjallað um einkalíf Guðna, meðal annars sagðar skemmtilegar sögur frá uppreisn æskunnar á sjöunda áratugnum, greint frá kostulegum uppákomum í starfi hans sem þingmanns og ráðherra og dregnar upp lifandi myndir af uppvexti hans í sextán systkina hópi á Brúnastöðum um og upp úr miðri síðustu öld.


Sigmundur Ernir Rúnarsson byggir bókina á samtölum sínum við Guðna og samferðamenn hans, birtum og áður óbirtum heimildum, meðal annars minnisblöðum Guðna, sem ekki hefur verið vitnað til áður.


Hér leggur Guðni Ágústsson spilin á borðið og segir söguna eins og hún horfir við honum.

Tengdar bækur