Fimmtíu dekkri skuggar

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2012 519 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2012 Mp3 1.090 kr.
spinner
Rafbók 2012 490 kr.
spinner

Fimmtíu dekkri skuggar

Útgefandi : JPV

490 kr.1.090 kr.

Fimmtíu dekkri skuggar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2012 519 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2012 Mp3 1.090 kr.
spinner
Rafbók 2012 490 kr.
spinner

Um bókina

Sjóðheit og kitlandi saga sem hefur seitt til sín milljónir lesenda og vakið gífurlega athygli, ekki síður en fyrirrennari hennar, Fimmtíu gráir skuggar.

Anastasia Steele hefur sagt skilið við glæsimennið Christian Grey vegna þeirra dökku skugga sem fylgja honum hvert fótmál og hafið störf hjá bókaútgáfu. En hún hugsar um hann öllum stundum og þegar hann hefur samband við hana bresta varnir hennar fljótt. Þau taka að nýju upp eldheita ástaleiki þar sem þau færast sífellt nær háskanum sem Anastasia hafði áður flúið.

Hún kemst smátt og smátt að leyndardómum Christians. Hann berst við sína innri djöfla en Anastasia þarf að takast á við reiði og afbrýðisemi kvenna úr fortíð hans, um leið og hún uppgötvar eigin þrár og langanir sem koma henni í opna skjöldu. Fyrr en varir þarf hún að taka mjög stóra ákvörðun – en ógnin bíður handan við hornið . . .

Fimmtíu dekkri skuggar er önnur bókin í Fifty Shades-þríleik E L James, saga sem rígheldur allt til síðustu blaðsíðu.

Ásdís Guðnadóttir þýddi.

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

Tengdar bækur