Ég heiti Ísbjörg ég er ljón

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2023 App 1.990 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Ég heiti Ísbjörg ég er ljón

Útgefandi : JPV

990 kr.1.990 kr.

Ég heiti Ísbjörg ég er ljón eftir Vigdísi Grímsdóttur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2023 App 1.990 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Um bókina

Vigdís Grímsdóttir hefur skipað sér sess meðal okkar fremstu samtímahöfunda með skáldsögum sínum og smásögum. Áhrifaríkur frásagnarstíll hennar heillar lesendur og skilur þá eftir reynslunni ríkari. Hér spinnur höfundur á listrænan hátt ótrúlega örlagasögu ungrar stúlku úr þeim margslungnu þráðum er leynast í mannlegu eðli. Af næmi og innsæi er tekist á við hildarleik tilfinninga og tilverurétt einstaklingsins. Ástin og hatrið, sektin og sakleysið hljóta enn á ný djúpa og óvænta merkingu í hugum lesandans.

Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón er í senn spennandi frásögn og ljóðræn túlkun, saga stúlku sem ratað hefur í ógæfu og bíður dóms. Á tólf stundum rekur hún sjálf sögu sína fyrir lögfræðingi og um leið fær lesandinn að kynnast því stig af stigi hvaða áhrifavaldar í lífi hennar ráða ferðinni, hver viðbrögð hennar við heiminum eru, hvað veldur því að hún verður viðskila við samfélag manna, hvers vegna örlög hennar verði slík.

Eftir situr hin áleitna spurning: Hver er Ísbjörg og hver er kominn til að dæma?

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

Hljóðbókin er 4 klukkustundir og 52 mínútur að lengd. Katla Njálsdóttir les.

Tengdar bækur