Drakúla

Útgefandi: Rúnatýr
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 337 5.180 kr.
spinner

Drakúla

Útgefandi : Rúnatýr

5.180 kr.

Drakúla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 337 5.180 kr.
spinner

Um bókina

Gotneska hrollvekjan Drakúla eftir Bram Stoker er ein vinsælasta skáldsaga allra tíma. Allt frá því hún kom út árið 1897 hefur hún ávallt verið fáanleg og verið þýdd á ótal tungumál. Á Íslandi kom sagan út í endursögn Valdimars Ásgeirssonar og birtist undir nafninu Makt myrkranna sem neðanmálssögur í tímaritinu Eimreiðin snemma á 20. öld. Einnig hafa birst endursagnir fyrir yngri lesendur en sagan í heild sinni hefur aldrei áður verið þýdd.

Sagan segir frá vampírunni Drakúla greifa og komu hans til Englands. Hann nýtur til þess aðstoðar Jonathans Harkers, sem er fulltrúi lögmannstofu í Lundúnum. Greifinn nærist á nokkrum aðilum í Englandi, þeirra á meðal Minu, tilvonandi eiginkonu Jonathans, og berst Harker, með aðstoð vina þeirra hjóna, m.a. Abrahams van Helsings, við greifann og að losa Minu undan áhrifum og bölvun Drakúla.

Áhrif Drakúla verða seint vanmetin. Óteljandi kvikmyndir hafa verið gerðar þar sem greifinn kemur við sögu og hafa margir leikarar spreytt sig á hlutverki hans, m.a. Christopher Lee, Gary Oldman og Bela Lugosi.

Þýðingu vann Gerður Sif Ingvarsdóttir.

Tengdar bækur