Double Happiness

Útgefandi: Crymogoea
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 82 5.190 kr.
spinner

Double Happiness

Útgefandi : Crymogoea

5.190 kr.

Double happiness
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 82 5.190 kr.
spinner

Um bókina

Ljósmyndabókin Double Happiness var gefin út hjá Crymogeu samhliða opnun sýningar Katrínar Elvarsdóttur, Margföld hamingja, í Gerðarsafni. Bókin er sú síðasta í þríleik ásamt Vanished Summer (2013) og Equivocal (2011).

Katrín dregur upp mynd af borg á mörkum þess hversdagslega og skáldaða með portrettmyndum af eldra fólki, náttúru í manngerðu umhverfi, híbýlum og fundnum skúlptúrum. Fábrotið og einsemdarlegt borgarumhverfið stangast á við titil myndaraðarinnar, tvítekningu á kínversku tákni fyrir hamingju sem er notað í skraut og til að marka hátíðlega viðburði.

Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) lauk BFA námi við Art Institute í Boston árið 1993. Hún stundaði nám í ljósmyndun við Brevard Community Collage 1990 og lauk BA gráðu í frönsku við Háskóla Íslands 1988. Katrín hefur haldið margar einkasýningar hérlendis og erlendis, þar á meðal Vanished Summer í Deborah Berke í New York 2014 og í Listasafni ASÍ 2013, Hvergiland í Listasafni Reykjavíkur 2010, Margsaga í Gallerí Ágúst 2008/2010 og Heima heiman í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 2008. Verk Katrínar hafa verið í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis, þar á meðal Anti-Grand í University of Richmond Museum 2015, Enginn staður: íslenskt landslag í Hafnarborg 2015, Visible Iceland í Hillyer Art Space í Washington 2014, Nordic Art Station í Eskilstuna Konstmuseum 2013 og Froniers of Another Nature í Hippolyte Gallery í Helsinki 2013.

Katrín hefur verið tilnefnd til ýmissa virtra verðlauna eins og heiðursverðlauna Myndstefs 2007 og Deutsche Börse Photographic Prize 2009. Katrín hefur einnig sinnt sýningarstjórnun og kennt ljósmyndun hérlendis og erlendis.

Tengdar bækur