Boot Camp – hámarksárangur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 184 | 3.100 kr. |
Boot Camp – hámarksárangur
3.100 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 184 | 3.100 kr. |
Um bókina
Boot Camp hefur náð gífurlegum vinsældum hér á landi enda vita þeir sem reynt hafa að þessar krefjandi æfingar skila frábærum árangri og það er auðvelt að læra þær. Um leið fela þær í sér áskorun og hvatningu til að láta reyna á þol líkamans án þess að ganga of langt.
Í þessari bók eru lýsingar á fjölbreyttum æfingum og teygjum ásamt æfingaáætlunum með bæði grunnæfingum fyrir byrjendur og elítuæfingum fyrir lengra komna. Skýringar-myndir eru af öllum æfingunum og þeim fylgja ábendingar um ýmis áhersluatriði. Einnig eru hér gagnlegar ráðleggingar um mataræði og fleira sem gott er að vita til að ná hámarksárangri.
Boot Camp er ekki bara fyrir harðjaxla heldur hentar öllum, óháð kyni, aldri og líkamlegu ástandi. Æfingarnar má stunda úti sem inni, allan ársins hring – það eina sem þarf er þessi bók og viljinn til að komast í form!
Höfundar Boot Camp-æfingakerfisins eru þeir Arnaldur Birgir Konráðsson og Róbert Traustason. Þeir hafa þjálfað þúsundir Íslendinga og kennt þeim að meta kosti Boot Camp-æfinga.
3 umsagnir um Boot Camp – hámarksárangur
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Góðir þjálfarar og æfingafélagar hafa hjálpað mér að komast lengra bæði líkamlega og andlega en ég hélt að ég gæti – Boot Camp hefur kennt mér að ekkert er óyfirstíganlegt, svo lengi sem maður ætlar sér það!“
Annie Mist Þórisdóttir, silfurverðlaunahafi á heimsleikunum í crossfit 2010.
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ég er ánægð með þessa bók … Sniðug bók fyrir þá sem langar til að prufa þetta form en treysta sér ekki í að mæta í gymmið. Sniðugt líka fyrir keppnismanneskjur …“
Kolbrún Ósk / miðjan.is
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Boot Camp-kerfið byggist ekki bara á einstaklega skemmtilegum og ögrandi æfingum heldur verður það lífsstíll sem stuðlar að hreysti og heilbrigði og gerir alla sem stunda æfingarnar að sigurvegurum!“
Karl Jóhann Ásgeirsson, framkvæmdastjóri