Blæbrigði vatnsins

Útgefandi: Opna
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 153 990 kr.
spinner

Blæbrigði vatnsins

Útgefandi : Opna

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 153 990 kr.
spinner

Um bókina

Frá örófi alda hefur maðurinn notað vatnsliti til listsköpunar og virðast menn nokkuð snemma hafa áttað sig á hvernig búa mætti til liti með því að blanda saman vatni og efnum úr jurta- og steinaríkinu. Vatnsliti má til dæmis finna bæði í hellamálverkum Evrópu sem og egypskum píramídum svo segja má að vatnslitirnir séu stór hluti af menningarsögunni frá upphafi til okkar daga. Íslenskir myndlistarmenn hafa einnig nýtt sér vatnsliti í sköpun sinni þótt helstu brautryðjendur séu ekki að stíga fram á sjónarsviðið fyrr en undir aldamótin 1900. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar en á þessum tíma hafa listamenn á öllum aldri kosið að mála með vatnslitum jafnframt öðrum miðlum og er vettvangur þeirra hér á landi fjölbreyttari nú en nokkru sinni fyrr.

Tengdar bækur