Belgjurtabókin

Útgefandi: Sumarhúsið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 200 4.690 kr.
spinner

Belgjurtabókin

Útgefandi : Sumarhúsið

4.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 200 4.690 kr.
spinner

Um bókina

Belgjurtabókin er sjöunda bókin í bókaflokkum Við ræktum. Höfundur bókarinnar, Sigurður Arnarson, fjallar um hina stóru og fjölbreyttu ætt belgjurta af þekkingu og reynslu sem garðeigandi og fyrrum skógarbóndi.

Í bókinni er ítarleg og vönduð umfjöllun um heila ætt plantna sem er jöfnum höndum nefnd belgjurtaætt og ertublómaætt á íslensku. Innan þessarar ættar eru tré, runnar og jurtir sem gæddar eru þeim eiginleika að geta nýtt gerla til að binda nitur andrúmsloftsins sér til hagsbóta. Slíkar plöntur spara áburðargjöf og stuðla að gróskumeira vistkerfi.

Á Íslandi má nýta þær í landbúnaði, skógrækt, garðrækt og landgræðslu. Fjallað er um tegundir innan ættarinnar sem einhver reynsla er af á Íslandi en einnig aðrar áhugaverðar plöntur sem margar hverjar eru líklegar til að geta þrifist hér á landi.

Alaskalúpína er ein þessara tegunda, Hún er umdeild og áberandi á Íslandi en á sér margar hófsamari frænkur sem kunna að vera heppilegar til landbóta.

Tengdar bækur