Án vegabréfs – ferðasögur

Útgefandi: Crymogea
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 320 4.690 kr.
spinner

Án vegabréfs – ferðasögur

Útgefandi : Crymogea

4.690 kr.

Án vegabréfs: ferðasögur - Einar Falur Ingólfsson
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 320 4.690 kr.
spinner

Um bókina

Flestir staðir heimsins eru á einhvern hátt frásagnarverðir en á sumum stöðum birtist saga mannkyns svo skýrt að hún getur setið fyrir á ljósmynd. Á ferðum sínum undanfarna áratugi hefur Einar Falur Ingólfsson elt uppi þessa staði.

Hann myndar rústir Tvíburaturnanna á meðan enn rýkur úr þeim í september 2001. Hann siglir um Yangtze-fljót rétt áður en lokið var við stærsta mannvirki síðari alda, hina tröllauknu Þriggja gljúfra stíflu í Kína. Hann slæst í hóp milljóna manna sem elta augnablikið þegar líf þeirra sameinast eilífum undrum og hann fetar djúpt í iður jarðar í slóð námumanna sem skipta á blóði og silfri.

Í einstöku samspili stórskemmtilegra frásagna og áhrifamikilla ljósmynda verður til svipmynd af heiminum á okkar dögum. Heimi án vegabréfs.

Tengdar bækur