Afbrot og íslenskt samfélag

Útgefandi: Háskólaútgáfan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 312 4.190 kr.
spinner

Afbrot og íslenskt samfélag

Útgefandi : Háskólaútgáfan

4.190 kr.

Afbrot og íslenskt samfélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 312 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Bókin Afbrot og íslenskt samfélag er innlegg í umræðu um íslenskt samfélag og þróun þess frá sjónarhorni félags– og afbrotafræðinnar. Tilgangur bókarinnar er að koma á framfæri aðgengilegu íslensku lesefni um afbrot á Íslandi og um leið að vekja áhuga og umræður um málefnið. Stuðst er við viðhorfsmælingar, opinber gögn, rýnihópa, fjölmiðla og niðurstöður sem túlkaðar eru í ljósi alþjóðlegs samanburðar.

Í bókinni er meðal annars leitað svara við eftirtöldum spurningum:
• Hver hefur þróun afbrotafræðinnar verið á Íslandi á síðustu árum?
• Hvað einkennir íslensk fangelsi og fanga?
• Hvernig hafa Íslendingar brugðist við fíkniefnavandanum?
• Eru dómstólar vægari en almenningur
• Hverjir eru gerendur kynferðisbrota gegn börnum?
• Hvert er umfang netbrota á Íslandi?

Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur kennt afbrotafræði við skólann í fjölda ára og sat í stjórn Norræna sakfræðiráðsins 2001 – 2015. Hann lauk doktorsprófi frá Missouriháskóla í Bandaríkjunum þar sem hann sérhæfði sig í afbrotafræði og réttarfélagsfræði.

Helgi hefur einn eða í samstarfi við aðra gefið út fjölda verka, þar á meðal: Afbrot og Íslendingar (2000), Wayward Icelanders: Punishment, Boundary Maintenance and the Creation of Crime (2000) og Afbrot á Íslandi (2008). Auk þess hafa greinar birst víða í fræðaheiminum, meðal annars í European Journal of Criminology, Howard Journal of Crime and Justice, Criminology and Crime Prevention og Social Problems.

Tengdar bækur